Laugardagurinn 28. maí 2022

Hverjir ætli séu í „Heimssýnararmi“ Sjálfstæðis­flokksins?


17. júlí 2010 klukkan 09:53

Þorsteinn Pálsson

Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, verður tíðrætt um það, sem hann kallar „Heimssýnararm“ Sjálfstæðisflokksins í vikulegum greinum sínum í Fréttablaðinu. Hverjir ætli séu í „Heimssýnararmi“ Sjálfstæðisflokksins?

Eru það Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og Ólöf Nordal, varaformaður flokksins, sem bæði hafa lýst andstöðu við inngöngu Íslands í ESB?

Eru það allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir utan þann eina, Ragnheiði Ríkarðsdóttur, sem er yfirlýstur stuðningsmaður aðildar?

Er það yfirgnæfandi meirihluti landsfundarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem á landsfundi í júní tók völdin af flokksforystunni og krafðist þess, að umsókn um aðild Íslands yrði dregin til baka?

Eru það nær 85% af kjósendum Sjálfstæðisflokksins, sem samkvæmt skoðanakönnunum eru andvígir aðild Íslands að ESB?

Eru það kannski útgerðarmennirnir, sem Þorsteinn Pálsson átti samleið með í ESB-málum á meðan hann var sjávarútvegsráðherra?

Er ekki kominn tími til að Þorsteinn Pálsson upplýsi samflokksmenn sína, sem treystu honum fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins í átta ár af hverju hann uppnefnir yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem „Heimssýnararm“?

???

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS