Það syrtir í álinn fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Stuðningsmenn hennar einn af öðrum lýsa vantrú á það, sem hún er að gera. Það hefur Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur gert. Guðmundur Andri Thorsson, rithöfiundur hefur enga trú á ESB-umsókninni eigi hún að verða mál Samfylkingarinnar einnar og nú hefur Þorvaldur Gylfason, prófessor bætzt í hópinn. Í grein í Fréttablaðinu í dag talar hann um „hálfvolga umsókn um inngöngu Íslands í Evrópusambandið“.
Orðrétt segir Þorvaldur:
„Ríkisstjórnin sýnir fá merki þess að hún skilji nauðsyn þess eða þori að takast á við óhagkvæmt búskaparlag frá fyrri tíð – með einni undantekningu, hálfvolgri umsókn um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Stjórnin virðist hvorki hafa þingstyrk né þrek til að standa við og ljúka eigin neyðaráætlun með stuðningi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlanda. Lamandi gjaldeyrishöft, sem hefðu að réttu lagi átt að leggjast af nú í haust, munu þurfa að vera áfarm við lýði í eitt til tvö ár enn að minnsta kosti því að án þeirra myndi gengi krónunnar falla að nýju. Peningastjórnin er óbreytt frá því fyrir hrun og átti þó talsverðan þátt í hruninu. Þar bólar hvergi á nýrri hugsun.“
Er nokkru við þetta að bæta?!!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...