Norðmaðurinn Iver B. Neumann, prófessor og yfirmaður norsku Alþjóðamálastofnunarinnar, flutti erindi í Háskóla Íslands í gær á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og norska sendiráðsins í Reykjavík. Skv. fréttum mbl.is kveðst prófessorinn sjálfur vera eindreginn stuðningsmaður aðildar Noregs að Evrópusambandinu.
Þar sem Háskóli Íslands er að sjálfsögðu æðsta menntastofnun íslenzku þjóðarinnar en ekki bara þess minnihluta hennar, sem styður aðild Íslands að ESB verður að ætla að innan tíðar muni einhver annar Norðmaður flytja fyrirlestur um Noreg og ESB út frá sjónarhóli andstæðinga aðildar Noregs að ESB.
Og þar sem norska sendiráðið í Reykjavík er að sjálfsögðu ekki að hlutast til um íslenzk innanlandsmál má ætla að sendiráðinu verði jafn ljúft að greiða fyrir slíkri heimsókn eins og heimsókn Iver B. Neumann.
Nýrrar heimsóknar frá Noregi er því beðið með eftirvæntingu og með því verður fylgzt hvort hún verður ekki örugglega að veruleika!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...