Laugardagurinn 28. maí 2022

Getur þetta kostað 5000 milljónir?


25. ágúst 2010 klukkan 11:11

Þessi mynd birtist á vefsíðu ESB-þingsins, þegar sagt frá samþykkt þess um viðræður við Ísland.

Í Morgunblaðinu í morgun birtist fréttaskýring um fyrirhugaðar stuðningsaðgerðir Evrópusambandsins við Ísland skv. IPA. Þegar fréttaskýringin er lesin má velta því fyrir sér, hvort hún sé í raun fréttaskýring um það, hvernig ónafngreindir embættismenn í utanríkisráðuneytinu eða öðrum ráðuneytum vilji láta skilja IPA-málið.

Í fréttaskýringunni segir:

„Landsáætlun IPA snýr að tvennu. Annars vegar að styrkja stjórnsýsluna á þeim sviðum, sem þörf er á til þess að uppfylla þær samningsskuldbindingar, sem íslenzka ríkið tekur á sig á endanum, ef til aðildar að Evrópusambandinu kemur.

Hins vegar að hjálpa Íslendingum við áætlanagerð að ákveða hvernig standa eigi að dreifingu styrkja úr evrópskum sjóðum hérlendis, ef Ísland gengur inn í ESB.“

Eftir lestur þessa texta stendur þeirri spurningu ósvarað, hvernig í ósköpunum það getur kostað 5000 milljónir – fimm þúsund milljónir króna - að styrkja stjórnsýsluna og hjálpa Íslendingum ef.....!

Eitt af því, sem ungir blaðamenn þurfa að læra er að taka ekki upp gagnrýnislaust það sem ónafngreindir embættismenn segja þeim.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS