Laugardagurinn 28. maí 2022

Nú hefur Össur rétt fyrir sér - efnahagsleg árás á Ísland!


28. ágúst 2010 klukkan 17:51

Össur Skarphéðinsson

Aldrei þessu vant hefur Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra lög að mæla. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, segir mbl.is að Össur hafi lýst beitingu hryðjuverkalaganna í Bretlandi á sínum tíma gegn Íslandi sem efnahagslegri árás Breta á Íslendinga. Þetta er rétt.

Hins vegar þarf Össur Skarphéðinsson að átta sig á því, að það er ekki minni efnahagsleg árás Breta og Hollendinga á Ísland, þegar þessar tvær þjóðir reyna að kúga okkur til þess að borga mörg hundruð milljarða króna, sem jafnvel Evrópusambandið sjálft er nú byrjað að viðurkenna að okkur sem þjóð ber ekki að greiða.

Hann þarf jafnframt að gera sér grein fyrir því, að samblástur Skota o.fl. þjóða með tilstyrk Evrópusambandsins gegn Íslendingum vegna makrílveiða er efnahagsleg árás þessara aðila á Ísland.

Ef Össur Skarphéðinsson breytir nú um stefnu, viðurkennir þennan veruleika og fer að tala máli Íslands á alþjóða vettvangi með þessum hætti eru komnar forsendur fyrir því að fara að tala við utanríkisráðherra.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS