Laugardagurinn 28. maí 2022

Í vinnubrögðum AGS á Íslandi sjáum við hvernig framtíðin yrði innan ESB


30. október 2010 klukkan 09:14

Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.

Þeir sem sitja á kaffistofu Pressunnar telja, að annar leiðarahöfundur Evrópuvaktarinnar viti lítið af umhverfi sínu hér á Íslandi. Hann geri samanburð á þeirri ánauð, sem Írar þurfi að búa við af hálfu Evrópusambandsins en horfi fram hjá því að hið sama eigi við um Ísland af hálfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.

Það er alveg rétt hjá kaffispekingum Pressunnar, að vinnubrögð Evrópusambandsins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins gagnvart ríkjum, sem leita á náðir þeirra eru nánast þau sömu. Og raunar hafa þessir tveir aðilar, ESB og AGS tekið höndum saman í Grikklandi og gengur ekki hnífurinn á milli þeirra.

Að vísu hafa þeir, sem standa að Evrópuvaktinni ekki verið sérstakir áhugamenn um að Ísland leitaði til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og þess vegna dugar ekki að berja á þeim með AGS! En það er aukaatriði.

Kjarni málsins er sá, að í vinnubrögðum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins hér á landi, sem við til allrar hamingju þurfum ekki að búa við nema í nokkur misseri, sjáum við hvað mundi bíða okkar ef við gerðumst aðilar að Evrópusambandinu. Það sjáum við bæði á Írlandi og í vinnubrögðum AGS hér.

Og þar sem þeim á kaffistofu Pressunnar er þetta svo vel ljóst má væntanlega ganga út frá því sem vísu, að þeir standi með Evrópuvaktinni í baráttunni gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu!

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS