Nú er ekki nóg með að úrsögn tveggja þingmanna úr þingflokki VG veiki ekki stjórnina að mati talsmanna hennar heldur lýsti Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þeirri skoðun í viðtali við RÚV í hádeginu í dag, þriðjudag, að úrsögn þeirra styrki ríkisstjórnina!!
Rök Össurar fyrir þessari gagnmerku pólitísku greiningu eru, að nú séu línur skýrar.
Þetta er rétt hjá Össuri að vissu leyti en á annan veg en hann sjálfur bersýnilega telur. Nú eru þær línur alveg skýrar að tveir hörðustu andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafa líf ríkisstjórnarinnar í hendi sér.
Nú getur Össur hvorki hreyft legg né lið í samskiptum við Evrópusambandið nema með því að biðja þá Ásmund Einar Daðason og Jón Bjarnason um leyfi.
Geri hann það ekki á Össur það á hættu að þeir hætti stuðningi við ríkisstjórnina og þá er Össur ekki lengur utanríkisráðherra!
Þessar línur eru mjög skýrar Össur!!!
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...