Sunnudagurinn 29. maí 2022

Í eigu „heimsfrægra“ Íslendinga?!


12. júní 2011 klukkan 06:41

kaninn.is

Í viðskiptalífinu velta menn því fyrir sér hvernig beri að skilja lítinn þrýsting á jöklabréfin í gjaldeyrisútboði Seðlabankans fyrir nokkrum dögum. Þar er sú skoðun útbreidd að ástæðan sé sú, að þau og skuldabréf bankanna séu að verulegu leyti í eigu Íslendinga og að í þeim hópi megi finna „heimsfræg“ nöfn á Íslandi!

Það skyldi þó aldrei vera að eitthvað sé til í þessu?!

Er ekki tilefni til að efna til rannsóknar til þess að fá úr því skorið, hvort þetta er rétt?

Og er kannski ástæða til að skoða hugmyndir Lilju Mósesdóttur, alþingismanns, um sérstakan útgönguskatt í þessu ljósi?

Hér skal ekkert fullyrt um, hvort þessar tilgátur manna í viðskiptalífinu eru réttar. En svo vitnað sé til fleygra ummæla í brezkum sjónvarpsþætti, þar sem háttsettur embættismaður svaraði fyrirspurnum um óþægilegan veruleika:

„You might say so, but I could not possibly comment“.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS