Laugardagurinn 28. maí 2022

Lög­reglan er í upplausn en auðvitað er mikilvægara að Ögmundur sé í Mexikó


28. september 2011 klukkan 08:14
Sigurður Bogi
Ögmundur Jónasson

Lögreglan er í upplausn en hafi einhverjir athugasemdir við það að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sé ekki á staðnum til þess að takast á við vandann væru slíkar athugasemdir á misskilningi byggðar.

Ögmundur er á fundi í Mexikó með samgönguráðherrum frá mörgum ríkjum til þess að ræða vegamál og einkaframkvæmd að því er Morgunblaðið upplýsir í dag. Efast einhver um að það sé mikilvægara að innanríkisráðherrann sé í Mexikó að ræða vegamál en fást við mestu vandamál, sem upp hafa komið í lögreglunni á Íslandi sennilega í 70-80 ár?

Ef slíkar efasemdir eru til staðar verður Ögmundur áreiðanlega ekki í vandræðum með að mæta þeim, þegar hann kemur heim.

En auðvitað er það heppilegt fyrir fyrrum verkalýðsleiðtoga opinberra starfsmanna, sem byggir pólitískan feril sinn á starfi sínu á þeim vettvangi, að vera víðs fjarri, þegar skerst í odda á milli rikisvalds og lögreglu út af kjaramálum.

Það hljóta allir að skilja og ósanngjarnt að saka Ögmund um að leggja á flótta við slíkar aðstæður.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS