Föstudagurinn 20. maí 2022

Stjórnar­flokkarnir eru í hugmyndalegri stöðnun - Hvað um Sjálfstæðis­flokkinn?


1. nóvember 2011 klukkan 09:56

Landsfundir stjórnarflokkanna beggja, Samfylkingar og Vinstri grænna, eiga eitt sameiginlegt. Þar voru engar nýjar hugmyndir á ferð. Engar umræður um framtíðarstefnu íslenzks samfélags á nýrri öld eða í kjölfarið á hruninu. Engar umræður um Nýja Norðrið og þau tækifæri, sem uppbygging á norðurslóðum mun opna fyrir okkur Íslendinga.

Þessi hugmyndalega stöðnun bendir til þess að flokkarnir viti ekkert hvert þeir vilji stefna. Út af fyrir sig má segja að þetta þurfi ekki að koma nokkrum manni á óvart. Það virðist ekki henta hæfileikum, hvorki Jóhönnu Sigurðardóttur eða Steingríms J. Sigfússonar að sinna því verkefni kjörinna forystumanna að marka þjóðinni framtíðarstefnu og skapa nýja framtíðarsýn á erfiðum tímum.

Þau láta forseta Íslands þetta verkefni eftir - sem er umhugsunarefni. Það er hægt að gagnrýna forsetann fyrir margt en hann er þó eini maðurinn á vinstri kanti íslenzkra stjórnmála, sem veltir framtíðinni eitthvað fyrir sér.

Nú kann skýrigin á þessu að vera sú, að auðvitað er sá hugmyndafræðilegi grundvöllur, sem Samfylking og VG hafa byggt á brostinn en þeim virðist ókleift að skapa nýjan. Kannski er það vandi jafnaðarmanna og sósíalista um allan heim.

Það verður fróðlegt að sjá, hvort Sjálfstæðisflokknum tekst betur til. Sá flokkur þarf líka á hugmyndafræðilegri endurnýjun að halda.

Er hún á leiðinni?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS