Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Lífeyris­sjóðirnir: Órofa samstaða verkalýðsforystu og vinnuveitenda!


28. desember 2011 klukkan 13:12
amx.is
Gylfi Arnbjörnsson

Mikið óskaplega eru hagsmunahóparnir fyrirsjáanlegir! Nú kom Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ fram á sjónarsviðið í hádegisfréttum RÚV og mælti gegn lýðræði í lífeyrissjóðum. Þar með eru þeir komnir í eina sæng vinnuveitendur og verkalýðsforingjar í þeim málum.

Rök forseta ASÍ gegn því að félagsmenn í lífeyrissjóðum kjósi sjálfir stjórnir sjóðanna í stað þess að um helmingaskipti sé að ræða milli vinnuveitenda og verkalýðsfélaga virðast vera þau, að lífeyrismál séu samningamál, sem verkalýðsfélögin hafi haft á hendi fyrir hönd félagsmanna sinna.

Hefur einhver talað um að taka samningagerð um lífeyrismál úr höndum stéttarfélaganna?

Það eru engin vandamál fólgin í því að samningar um lífeyrismál séu áfram í höndum þeirra, þótt félagsmenn í sjóðunum, sem jafnframt eru flestir hverjir einnig félagsmenn í einstökum launaþegafélögum kjósi stjórnir sjóðanna.

Það er heldur ekkert flókið að samninganefndir stéttarfélaga hafi samráð við stjórnir lífeyrissjóða, þegar það á við, þótt stjórnir sjóðanna séu kosnar beinni kosningu en ekki skv. tilnefningu verkalýðsfélaga og vinnuveitenda.

Þeir verða báðir, Gylfi Arnbjörnsson og Arnar Sigurmundsson að finna betri rök en þau, sem þeir hafa teflt fram í dag gegn væntanlegu frumvarpi Péturs Blöndals og fleiri þingmanna um lýðræði í lífeyrissjóðum.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS