Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu á Alþingi, ekki sízt í þeim málum, sem snúa að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu en fleiri málum einnig. Í Morgunblaðinu í dag vekur hún athygli á endurteknum lögbrotum núverandi ríkisstjórnar og segir:
„Þann 15. febrúar sl. dæmdi Hæstiréttur að lög nr. 151/2010 færu gegn stjórnarskrá. Ríkisstjórnin hefur enn á ný verið dæmd af verkum sínum af æðsta dómstóli landsins - sjálfum Hæstarétti. Áður hafði Hæstiréttur úskurðað stjórnlagaþingkosninguna ólöglega og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra var fundin sek fyrir réttinum um afglöp í starfi í málefnum Flóahrepps. Meira að segja heilög Jóhanna tapaði máli fyrir kærunefnd jafnréttismála vegna ráðningarmála, þegar hún tók karlmann fram fyrir konu í starfi. Hver hefði trúað þessu að fullreyndu?“
Allt er þetta rétt, þótt einhverjum kunni að þykja, að Vigdís Hauksdóttir tali stundum svo umbúðalaust að lengra megi ekki ganga.
En það fer ekki á milli mála, að á vettvangi Framsóknarflokksins er að koma fram mjög öflugur þingmaður, sem líkleg er til meiri umsvifa í framtíðinni.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...