Það er að verða til þverpólitísk samstaða um að spyrja þjóðina um framhaldið á aðildarumsókninni að ESB. Að vísu er Samfylkingin ekki hluti af þeirri samstöðu enda ekki við því að búast.
Á nokkrum vikum hafa Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ögmundur Jónasson og Ragnar Arnalds, öll úr VG lýst þeirri skoðun að efna eigi til slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú um helgina tekur Þorgerður Katrín Gunnarsdótir, sem verið hefur í forystu þeirra innan Sjálfstæðisflokksins, sem vilja aðild, undir þá skoðun í samtali við DV. Raunar hefur Þorgerður Katrín áður lýst áþekku sjónarmiði.
Að vísu er einhver munur á afstöðu þessa fólks til tímasetningar en væntanlega ætti ekki að vera erfitt að ná samstöðu um slíkt.
Ganga má út frá því sem vísu, að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur séu hlynntir slíkri atkvæðagreiðslu. Þótt þingmenn Hreyfingarinnar hafi tekið þátt í að fella tillögu Vigdísar Hauksdóttur fyrir skömu um slíka atkvæðagreiðslu samhliða atkvæðagreiðslu um stjórnarskrártillögur er ljóst af yfirlýsingum þeirra að þeir yrðu ekki andvígir slíkri atkvæðagreiðslu um aðildarumsóknina á öðrum tíma.
Er ekki ástæða til að einhverjir forystumenn á þingi fylg þessari þverpólitísku samstöðu eftir?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...