Það er skoðun margra í stjórnmálaheiminum að Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG sé orðinn hlynntur því að Ísland gangi í Evrópusambandið og þar sé að finna skýringuna á vandræðagangi flokksins í málinu. Fjögurra ára dvöl Steingríms J. í hásölum valdsins og umgengni hans við ráðamenn ESB og annarra ríkja, sem hann ber djúpa lotningu fyrir eins og sést hefur, hafi orðið til þess að hann sé nú hlynntur aðild Íslands. Hann hafi sem sagt smitast eins og algengt er með starfsmenn utanríkisþjónustunnar.
Ef þetta er rétt skýrir það vandamál VG að búa við stefnu, sem mörkuð hefur verið af flokksþingi og er hin opinbera stefna flokksins en búa við forystu, sem er orðin andvíg stefnu flokksins.
En nú er sú stund að nálgast að Steingrímur J. verður að gera upp hug sinn. Hann getur ekki haldið áfram að tala tungum tveim.
Þess vegna er flokksráðsfundur VG snemma í janúar mikilvægur og ekki síður hver viðbrögð andstæðinga aðildar innan flokksins verða ef í ljós kemur að Steingrímur J. ætlar flokknum að halda áfram að bera kápuna á báðum öxlum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...