Það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig vinstri menn bregðast við fyrirsjáanlegum kosningaósigri sínum um helgina.
Fyrri hluta 20. aldar voru þeir klofnir vegna hugmyndafræðilegs ágreinings kommúnista og sósíaldemókrata.
Síðari hluta 20. aldar átti klofningur þeirra rætur að rekja til kalda stríðsins og mismunandi sjónarmiða þeirra til þess.
Eftir að kalda stríðinu lauk og Sovétríkin voru fallin virtist ekki lengur nein hindrun í vegi fyrir sameiningu vnstri manna í einni pólitískri fylkingu. Reykjavíkurlistinn varð til og náði árangri og síðar Samfylkingin en þó kom í ljós við stofnun hennar að ekki tókst að sameina alla vinstri menn í einum flokki.
Nú hefur tvennt gerzt. Fyrsta ómengaða vinstri stjórnin í sögu Íslands misheppnaðist. Fyrirsjáanlegt afhroð í kosningum er staðfesting á því.
En jafnframt ganga vinstri menn til kosninga í sex fylkingum í stað tveggja. Það er staðfesting á því að sameiningarþróunin, sem hófst með tilkomu Reykjavíkurlistans hefur líka misheppnast.
Hvað veldur?
Væntanlega er mikil sjálfskönnun framundan hjá vinstri mönnum. Þeir hljóta að spyrja sjálfa sig, hvers vegna þeim hefur bæði mistekizt að sameinast í einum flokki og líka hvers vegna þeir klúðruðu einstöku tækifæri í landstjórninni.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...