Stundum getur skipt miklu máli í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík hvað gerist eða gerist ekki í landsmálum og í sjálfu sér getur það átt við um höfuðborgarsvæðið allt. Þessi pólitíski veruleiki á við nú.
Á undanförnum mánuðum hefur Framsóknarflokkurinn tapað verulegu fylgi í skoðanakönnunum vegna vaxandi vantrúar kjósenda á að flokkurinn standi við gefin loforð vegna skuldaleiðréttinga. Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar staðið betur í könnunum miðað við úrslit þingkosninganna, þótt staða hans sé auðvitað óviðunandi í sögulegu samhengi.
Ákvörðun Jóns Gnarr um að hætta þýðir hins vegar að báðir stjórnarflokkarnir hafa meiri möguleika í borgarstjórnarkosningum, Sjálfstæðisflokkur að ná meirihluta og Framsóknarflokkur að rétta sinn hlut en það byggist á því að ríkisstjórnin skili sínu.
Í því felst að hún þarf að standa við stóru orðin fyrir borgarstjórnarkosningar.
Aðgerðir eða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar getur haft meiri áhrif á úrsliti borgarstjórnarkosninga heldur en kosningabarátta flokkanna á vettvangi borgarmála.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...