Laugardagurinn 28. maí 2022

Verður frekar hlustað á Össur Skarphéðinsson í Brussel en David Cameron?!


23. júní 2014 klukkan 09:58

Bretar eru enn eitt mesta hernaðarveldi í Evrópu. Þeir eru enn í hópi stærstu efnahagsvelda heims. London er ein helzta fjármálamiðstöð í heimi. Þeir eru jafnframt í hópi fjölmennustu aðildarríkja ESB.

Össur Skarphéðinsson og Stefan Füle

Samt er það svo, að meginlandsríkin, sem upphaflega stofnuðu til þess samstarfs, sem nú gengur undir nafninu Evrópusamband telja sig geta hundsað óskir þeirra um þróun sambandsins gersamlega og skiptir þá ekki máli hvort um sé að ræða skipan í æðstu stöður eða meginstefnu ESB á næstu árum eins og sagt er frá á öðrum vettvangi hér á Evrópuvaktinni í dag.

Í raun eru meginlandsríkin að segja við Breta: Okkur er sama hvort þið farið eða verið. En ef þið ætlið að vera hér áfram verðið þið að sætta ykkur við að við ráðum ferðinni en þið ekki.

Allt tal um að aldrei sé gengið gegn sjónarmiðum einstakra aðildarríkja í miklum hagsmunamálum þeirra er ósannindi. Og því hafa embættismenn í Brussel skrökvað að íslenzkum sendimönnum, sem hafa það svo eftir þeim gagnrýnislaust hér.

Er líklegt að meira tillit verði tekið til sjónarmiða Össurar Skarphéðinssonar í Brussel en Davids Camerons?!

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS