Þótt fátt sameini aðildarríki ESB um þessar mundir annað en þátttaka í einhverjum hrikalegustu hrossakaupum, sem fram fara í okkar heimshluta er þó eitt sem sameinar aðildarríkin utan Þýzkalands og ákveðna hópa innan Þýzkalands en það er löngunin til að koma böndum á völd og áhrifn Angelu Merkel, að því er fram kemur í þýzka tímaritinu Der Spiegel..
Um þetta hafa aðildarríkin, önnur en Þýzkaland, sameinast undir forystu Frakka og Ítala og með þátttöku jafnaðarmanna í Þýzkalandi, sem eiga aðild að ríkisstjórn Merkel.
Svo að það sé sagt með einfaldari hætti: Það er í gangi „krataplott“ gegn Merkel.
Þó er ólíklegt að Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Dana og leiðtogi jafnaðarmanna þar í landi sé þátttakandi í því. Merkel virðist hafa gert hana að skjólstæðingi sínum og stefnir að því að leiða hana til metorða innan ESB.
Kannski hafa þær sameinast um að setja „strákana“ til hliðar.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...