Laugardagurinn 28. maí 2022

ESB-aðildarsinnar leita að nýrri víglínu - hafna áfram staðreyndum


18. júlí 2014 klukkan 13:17

ESB-aðildarsinnum er nú kynnt nýtt haldreipi.

Þeir geta ekki lengur haldið sig í viðræðureipið. Jean-Claude Juncker lengdi svo í því miðvikudaginn 15. júlí að það slitnaði.

Þessi mynd birtist á vefsíðu ESB-þingsins, þegar sagt frá samþykkt þess um viðræður við Ísland.

Fyrir fimm árum sagði Árni Páll Árnason að Íslendingar mundu greiða atkvæði um aðild að ESB árið 2011.

ESB stöðvaði viðræðurnar árið 2011. Síðan hafa ESB-aðildarsinnaðir Íslendingar þó haldið sér í þetta reipi. Viðræðunum ætti að ljúka og greiða atkvæði um niðurstöðuna,

Ætla þeir að halda áfram að kyrja þennan söng fram yfir 2019?

Nei, nú er skipt um texta.

Ólafur Þ. Stephensen gerir það í leiðara Fréttablaðsins föstudaginn 18. júlí. Hann segir: „það er mikilvægt fyrir Ísland að eiga þann kost að geta hafið viðræður á ný án þess að þurfa að ganga í gegnum allt umsóknarferlið aftur.“

Nýjasta haldreipið er að Ísland verði áfram umsóknarríki. Hvers vegna? Af því það má ekki útiloka „raunhæfasta kostinn“ til að taka upp evru.

Fyrrverandi seðlabankastjóri Kýpur varaði Íslendinga sérstaklega við evrunni á dögunum.

Sagt hefur verið að ljúka verði ESB-viðræðunum til að taka ESB-málið af dagskrá. Viðræðunum er lokið en ESB-aðildarsinnar halda áfram að klifa á ESB-málinu án þess að taka rökum.

Binda ber enda á umsóknarferlið og loka fáránleikahúsinu sem opnað var fyrir fimm árum.

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS