Það er ástæða til að vekja athygli á úttekt Harðar Ægissonar, blaðamanns á Morgunblaðinu á stöðu mála varðandi þrotabú gömlu bankanna í ViðskiptaMogganum í gær, fimmtudag. Þar fjallar hann annars vegar um hina efnislegu stöðu málsins í stærstu dráttum en gerir jafnframt grein fyrir þeim hópi fólks, Íslendingum og útlendingum, sem hafa verið ráðnir til að vinna að málinu fyrir Íslands hönd.
Þetta er bezta umfjöllun, sem birtzt hefur í langan tíma í íslenzkum fjölmiðli um þetta mikla hagsmunamál þjóðarinnar, sennilega það stærsta sem komið hefur á dagskrá hér í langan tíma.
Það er mikið talað um nauðsyn þess að afnema gjaldeyrishöftin en það er minna talað um veruleikann að baki.
Hörður Ægisson er bersýnilega einn af framtíðarmönnum á ritstjórn Morgunblaðsins.
Umfjöllun hans um þetta stóra mál er þess verð að í hana sé rýnt.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...