Þrátt fyrir mikla fjölmiðlun eiga fjölmiðlar stundum erfitt með að koma til skila því andrúmslofti, sem ríkir í þeim löndum eða samfélögum, sem þeir fjalla um. Fjölmiðlunin snýst stundum meira um einstaka atburði eða tölur.
Þótt mikið hafi verið fjallað um Grikkland á undanförnu árum kemur það Íslendingum, sem þangað koma á óvart hvað svartsýni er mikil þar um framtíðina.
Einn Íslendingur sem þar var á ferð í sumar upplifði andrúmsloftið á þann veg, að Grikkir tali ekki um annað en kreppuna. Þeir líti svo á að það taki ekki ár heldur áratugi fyrir þjóðina að ná sér á strik. Og jafnvel að hún nái sér aldrei á strik.
Að fólk streymi frá Aþenu til annarra hluta landsins vegna þess að þrátt fyrir meðaltalstölur um atvinnuleysi sé það miklu meira í Aþenu en annars staðar.
Sennilega áttum við okkur ekki fyllilega á hvað við Íslendingar vorum heppnir að ekki tókst að þvinga okkur til að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru í kjölfar Hrunsins.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...