Laugardagurinn 28. maí 2022

Viðskiptastríð skollið á milli Rússlands og Vesturlanda

Hluta­bréf lækkuðu í viðskiptum í Kaupmannahöfn í morgun


8. ágúst 2014 klukkan 09:05

Það er skollið á viðskiptastríð á milli Rússlands og Vesturlanda eins og ákvarðanir Rússa um bann við innflutningi á matvælum frá tilgreindum ríkjum á Vesturlöndum sýnir. Það viðskiptastríð hefur víðtækari áhrif en þau sem snúa að matvælafyrirtækjum einum.

Joebloggsy
Kort af Evrópu með fánum allra landanna.

Danska blaðið Berlingske Tidende segir að hlutabréf í Kaupmannahöfn hafi lækkað um 2,5% á fyrsta klukkutíma viðskipta þar í morgun.

Það er ekki bara Rússland sem hér kemur við sögu. Að því er fram kemur í Berlingske hafa loftárásir Bandaríkjamanna í norðurhluta Íraks líka sitt að segja.

Þótt Ísland sé ekki á hinum svarta lista Rússlands er óhjákvæmilegt að áhrifa þessa viðskiptastríðs gæti með einum eða öðrum hætti hér.

The Moscow Times segir að Rússar muni nú beina matvælakaupum sínum til Suður-Ameríku og þá ekki sízt til Brasilíu en Rússar og Brasilíumenn eiga aðild að svonefndum Brics-hópi.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS