Lakkríspípa er vinsæl í Danmörku og sælgætisframleiðandinn Cloetta selur hana undir heitinu Skipperpibe, skipparapípa.
Í ágúst árið 2013 var orðrómur um að ESB ætlaði að banna sölu á lakkríspípum. Vegna hans hljóp mikill vöxtur í söluna á Skipperpibe. Hún hefur aldrei selst betur en frá því í ágúst 2013.
Á einu ári hafa selst 18 milljón skipperpípur. Talan sýnir að Danir keyptu lakkríspípu á 1,7 sekúndu fresti, segir í fréttatilkynningu frá Cloetta.
Á þennan hátt hafa Danir viljað sýna að þeir sætta sig ekki við afskipti ESB af þessu sælgæti sínu.
Framleiðandinn segist ætla að gæta þess að hin mikla sala á skipparapípunni verði ekki til að spilla gæðum hennar.
Nú ætlar Cloetta, sem var stofnað 1862, að kynna til sögunnar skipparapípu með sjávarsaltbragði og í desember munu Danir geta keypt Skipperpibe julekalender jóladagatal skipparapípunnar.
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...