Finnar eru í Evrópusambandinu og hafa tekið upp evru.
Aðild þeirra byggist að vísu ekki á efnahagslegum forsendum heldur pólitískum. Þeir telja aðild vera vörn fyrir sig gagnvart Rússlandi.
Evrukreppan, sem aðallega hefur þjakað aðildarríkin við Miðjarðarhaf hefur verið að teygja sig í norðurátt.
Hún er komin til Frakklands og er byrjuð að hafa áhrif á Dani, sem hafa tengt dönsku krónuna við evru.
Á undanförnum misserum hefur hennar gætt í vaxandi mæli í Finnlandi, eins og fram hefur komið hér á Evrópuvaktinni.
Nú halda sérfræðingar í Finnlandi því fram að fjöldaatvinnuleysi sé framundan í landinu að því er fram kemur í fréttum Yle-fréttastofunnar finnsku.
Opinberar tölur í Finnlandi segja að atvinnuleysið í landinu hafi verið um 7% í júlí, sem hafi verið 0,4% meira en árið áður.
Í maí voru tæplega 300 þúsund Finnar atvinnulausir.
Nú segja sérfræðingar að haustinu muni fylgja aukið atvinnuleysi.
Stór fyrirtæki í Finnlandi á borð við Itelia, Fazer, FTT, Sanoma, Valio, DNA o.fl. hafa öll tilkynnt um uppsagnir eða viðræður um fækkun starfsfólks.
Í júlí á þessu ári var þúsund manns sagt upp samanborið við 200 í júlí í fyrra.
Efnahagslægðin í Finnlandi fer vaxandi og fyrirtækin hafa ekki efni á að bíða og reyna að standa hana af sér.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...