Finnar standa verst að vígi taki Rússar ákvörðun um að skrúfa fyrir gassendingar til annarra Evrópuríkja. Finnar halda engar birgðir af gasi og allt gas, sem þeir nota kemur frá Rússlandi. Ef Rússar skrúfa fyrir gasið, þótt ekki væri nema í einn mánuð, mundu Finnar finna fyrir því. Þetta kemur fram á evrópska vefmiðlinum euobserver.
Þessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu frá Háskólanum í Köln. Þar kemur líka fram, að 6 mánaða stöðvun á gasstreymi frá Rússlandi mundi valda vandræðum í Evrópuríkjum, sérstaklega í austurhluta Evrópu og í Þýzkalandi.
Þriggja mánaða stöðvun kæmi sér illa bæði fyrir Pólverja og Tyrki.
Á móti kemur að Rússar yrðu af miklum tekjum.
Sá fulltrúi í framkvæmdastjórn ESB sem fjallar um orkumál segist ekki lengur útiloka að Rússar grípi til þess að skrúfa fyrir gas til Evrópuríkja. Pútín hafi beitt svo mjög rangri upplýsingagjöf og lygum að honum sé trúandi til hvers sem er.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...