Umræður um áhrif Þýzkalands innan Evrópusambandsins halda áfram og ná nú í vaxandi mæli til Þjóðverja sjálfra. Þýzka tímaritið Der Spiegel, fjallar í ítarlegri grein um þessar umræður og stöðu Þýzkalands, sem sumir kalla nú „Fjórða ríkið“ með tilvísun í þriðja ríki Adolfs Hitlers.
Spiegel segir að Þjóðverjar hafi ráðið ferðinni í evrukrísunni en Þýzkaland sé sem dvergur, þegar komi að pólitískum áhrifum í alþjóðamálum. Í þeim efnum hafi höfnun þeirra á þátttöku í loftárásum á Líbýu markað viss þáttaskil og Frakkar hafi t.d. litið á þá ákvörðun sem skref aftur á bak.
Ákall um aukin afskipti Þjóðverja, sem hafi komið frá ríkjum í austurhluta Evrópu sé mótsögn við kvartanir um efnahagsleg áhrif þeirra.
Samlíking við þriðja ríkið eigi ekki við vegna þess að fjórða ríkið hafi hvorki áhuga á að beita valdi eða ýta undir rasisma. En Þjóðverjar vilji hins vegar græða peninga.
Það sé augljóst að Þjóðverjar stjórni evrusvæðinu en að vísu ekki án athugasemda frá öðrum.
Og Þjóðverjar hafi ekki bolmagn til að leysa öll vandamál annarra með peningum
En niðurstaða Spiegel er að Þýzkaland eigi að sýna meira örlæti - og draga úr meiðandi ummælum um aðra og er þá m.a. vísað til orða Schauble, fjármálaráðherra um Grikki.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...